Tilþrif Það sáust mörg glæsileg tilþrif á skautasvellinu í gær.
Tilþrif Það sáust mörg glæsileg tilþrif á skautasvellinu í gær. — Ljósmynd/sportmyndir.is
Það sáust mörg glæsileg tilþrif á skautasvellinu í Laugardalnum þegar keppni hófst í listhlaupi á Reykjavíkurleikunum. 23 erlendir keppendur eru skráðir og hafa aldrei verið fleiri. Í kvennaflokki (Senior) hafa 8 keppendur skráð sig til leiks.

Það sáust mörg glæsileg tilþrif á skautasvellinu í Laugardalnum þegar keppni hófst í listhlaupi á Reykjavíkurleikunum. 23 erlendir keppendur eru skráðir og hafa aldrei verið fleiri. Í kvennaflokki (Senior) hafa 8 keppendur skráð sig til leiks. Má þar nefna Camilla Gjersem frá Noregi, Juulia Turkkila frá Finnlandi og Michaela Du Toit frá Suður-Afríku. Allar eru þær meistarar í sínu heimalandi og hafa náð góðum árangri á stærstu mótunum í íþróttinni. gummih@mbl.is