[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Óvænt úrslit hafa verið regla fremur en undantekning á Skákþingi Reykjavíkur sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur við Faxafen.

Óvænt úrslit hafa verið regla fremur en undantekning á Skákþingi Reykjavíkur sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur við Faxafen. Í sjöttu umferð sem fram fór á miðvikudagskvöldið gerði hinn 12 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistarann frá 2014, Guðmund Kjartansson, á sannfærandi hátt. Hann hafði áður unnið Björn Þorfinnsson og reiknast frammistaða hans nú upp á tæplega 2.400 elo-stig. Jón Viktor Gunnarsson er enn í forystu en hefur fengið félagsskap á toppnum. Efstu menn:

1.-2. Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson 5½ v. (af 6 ) 3.-5. Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragnarsson og Björn Þorfinnsson 5 v. 6.-8 Guðmundur Gíslason, Mikhael Jóhann Karlsson og Þorvarður Ólafsson 4½ v.

Í sjöundu umferð sem, fram fer á morgun, sunnudag, tefla efstu menn innbyrðis, Jón Viktor teflir við Stefán, Dagur við Vigni Vatnar og Björn Þorfinnsson mætir Þorvarði Ólafssyni. Og þá er komið að einni umtöluðustu skák mótsins:

Skákþing Reykjavíkur 216; 6. umferð:

Vignir Vatnar Stefánsson – Guðmundur Kjartansson

Reti – byrjun

1. Rf3 Rf6 2. g3 c5 3. d3 d5 4. Rbd2 g6 5. Bg2 Bg7 6. 0-0 0-0 7. e4

Kóngsindverska uppbyggingin sem Bobby Fischer hafði mikið dálæti á kom einnig fyrir í skák Vignis við Björn Hólm í 5. umferð.

7.... Rc6 8. c3 e5 9. a4 Dc7 10. exd5 Rxd5 11. He1 Hd8 12. Rc4 Rb6 13. De2 Rxc4!? 14. dxc4 Bf5 15. Rd2 Bd3 17. De3 Ra5?

Gallinn við uppskiptin á c4 liggur í veikingu á hvítu reitunum. Samt er þetta fyrsta ónákvæmni svarts, betra var 17.... Re7 sem hótar 18.... Rf5.

18. Bd5! Bc2 18. Df3 Hd7 19. Ha2

Lævís leikur sem hótar 20. b4.

19.... Bf5 20. Re4 Bxe4 21. Hxe4 Kh8 22. Hh4!

Hefur í hótunum. Nái hvítur að leika g3-g4 getur reynst erfitt að verja kóngsstöðuna.

22.... f5 23. g4!

Hótar 24. Hxh7+ Kxh7 25. Dh3+ og mátar.

23.... Hxd5?

Afræður að láta skiptamun af hendi en betra var 23.... f4 því að 24. Hxh7+ Kxh7 25. Dh3+ Bh6 26. g5 má svara með 26.... Hxd5! o.s.frv.

24. cxd5 f4 25. De4 Bf6 26. Hh3 Rb3 27. c4!

Snarplega leikið. Vignir sá að riddarinn á ekki afturkvæmt frá c1.

27.... Dd7 28. Dxg6!

Alls ekki 28. Hxb3 Dxg4+ og 29.... Dd1+.

28.... Hf8 29. Kf1! Bd8 30. Dh5 Rxc1 31. Ha1

Nú er eftirleikurinn auðveldur.

31. ... Dg7 32. Hxc1 Bg5 33. He1 h6 34. Hf3 Hd8 35. h4 Kg8 36. hxg5 hxg5 37. Kg2 b6 38. Hh3 Hf8

– og gafst upp um leið

Afleikur ársins í Wijk aan Zee

Magnús Carlsen tók mikla áhættu í skák sinni við Hollendinginn Van Wely í 5. umferð stórmótsins í Wijk aan Zee sl. fimmtudag. Hann fórnaði skyndilega manni í jafnri stöðu og á einum stað gat Van Wely knúið fram vinning, missti af tækifærinu og tapaði í 39.leikjum. Þetta var fyrsta sigur heimsmeistarans en staðan er þessi:

1.-2. Caruana og Ding 3½ v . 3.-6. Hou Yifan, Wesley So, Magnús Carlsen og Eljanov 3 v. 7.-9. Karjakin, Wei Yi og Mamedyarov 2½ v. 10.-12. Giri, Tomashevsky og Navara 2 v. 13. Van Wely 1½ v. 14. Adams 1 v.

Afleikur ársins kom í 3. umferð í eftirfarandi stöðu:

Mamedyarov – Eljanov

Svartur lék síðast 37..... Hdc8 og nú vinnur 38. Hb6 létt. En Aserinn sem átti nægan tíma uggði ekki að sér og lék 38. c5?? Eftir 38.... Dxb1 stoppaði hann klukkuna og gafst upp.