Ýmir Bald. V-AV
Norður | |
♠652 | |
♥K82 | |
♦109864 | |
♣85 |
Vestur | Austur |
♠7 | ♠DG84 |
♥109543 | ♥ÁG |
♦D7 | ♦K53 |
♣107632 | ♣ÁKDG |
Suður | |
♠ÁK1093 | |
♥D76 | |
♦ÁG2 | |
♣94 |
Suður spilar 2♠.
Það er ágæt regla að leika biðleik þegar enginn sóknarleikur er freistandi. Sigurbjörn Haraldsson, öðru nafni Bessi bratti og þriðja nafni Ýmir Bald, gerði þessa reglu að sinni í landsliðskeppni BSÍ fyrir skömmu. Ýmir var í suður á móti Precision-mönnunum Birni Eysteinssyni og Guðmundi Hermannssyni.
Pass, pass og eitt sterkt lauf í austur. Ýmir sagði 1♠, vestur pass og Jón Bald í norður lyfti í 2♠ – hávaðasögn til að breiða yfir fyrirsjáanlegt skvaldur andstöðunnar á öðru þrepi. Það tókst. Allir sögðu pass og vestur kom út með hjartaþrist – smátt úr borði, gosi og drottning.
Staðan hrópar á biðleik og Ýmir spilaði laufi. Austur trompaði út, Ýmir svínaði tíunni og spilaði öðru laufi. Trompdrottningin kom úr austrinu, tekin með ás og hjarta hent í vestur. Nú var allt upptalið, að mati Ýmis, sem spilaði litlum tígli og lét vörnina gefa sér áttunda slaginn.