[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meðalafurðir á árskú jukust óvanalega mikið á síðasta ári eða um 130 kíló. „Árið einkenndist af því að menn eru að keppast við að framleiða sem mest. Það er greitt fullt verð fyrir alla mjólk.

Baksvið

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Meðalafurðir á árskú jukust óvanalega mikið á síðasta ári eða um 130 kíló. „Árið einkenndist af því að menn eru að keppast við að framleiða sem mest. Það er greitt fullt verð fyrir alla mjólk. Heygæðin í fyrra voru mjög slök og því er keyrt á miklu kjarnfóðri. Árangurinn er samt mjög góður,“ segir Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, RML.

Samkvæmt niðurstöðum skýrsluhalds nautgriparæktarfélaganna, sem RML birti í gær, var afurðahæsta kúabúið hjá Pétri Friðrikssyni, bónda á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd. Kýr hans skiluðu að meðaltali 8.308 kg mjólkur. Hjó hann nærri Íslandsmeti Ólafs Helgasonar í Hraunkoti sem framleiddi að meðaltali 8.340 kg á árinu 2011.

Pétur hefur náð mjög góðum árangri í búskapnum. Frá því hann tók við búinu fyrir sex árum hefur hann stækkað mikið og aukið framleiðsluna og meðalafurðir jafnframt aukist stórkostlega. Kýrnar mjólka að meðatali 2.700 lítrum meira á ári en þær gerðu þegar hann tók við. Í fjósi hans eru margar mjög góðar kýr. Til dæmis eru tólf þeirra á lista yfir kýr sem mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló á síðasta ári.

Hægt að hækka meðaltalið

Meðalafurðir kúnna í skýrsluhaldinu voru 5.851 kg, 130 kg meira en á árinu á undan sem var metár. Meðalafurðirnar eru að nálgast 6.000 kg mjólkur og með sama áframhaldi næst það mark á fyrri hluta næsta árs.

Afurðir allra bestu búanna eru komnar vel yfir 8.000 kg. „Það eru sífellt fleiri bú rekin af fagmennsku og mörg með yfir 7.000 kg meðalafurðir sem þótti óhugsandi fyrir 25 árum. Nú er fjöldi bænda í þeim sporum. Á sama tíma er bilið á milli þeirra lökustu og bestu ekki að minnka, því miður. Hluti bænda situr svolítið eftir. Það er fyrst og fremst fóðrunarþátturinn sem ekki er í lagi,“ segir Guðmundur. Hann segir að þessar staðreyndir sýni að hægt sé að auka mjög meðalafurðir á næstu árum. Með því að ná neðri hlutanum upp sé hægt að komast lengra.

Guðmudur telur að íslenska kýrin hafi enn svigrúm til aukinnar framleiðslu. Bendir hann á að fjöldi kúa sé að mjólka 8.000 kg og meira. „Við höfum stóraukið afurðagetuna og breytt kúnni töluvert með kynbótum. Þá eigum við töluvert inni í bættu uppeldi og betri fóðrun almennt,“ segir Guðmundur.

Uggandi yfir framtíðinni

Eins og fram kemur hjá Guðmundi keppast bændur við að framleiða sem mest, vegna hvatningar frá mjólkuriðnaðinum. Hefur það leitt til offramleiðslu á mjólk og birgðasöfnunar. Guðmundur telur að lítið eða ekkert hafi slaknað á því, enda fái menn enn greitt fullt verð fyrir alla mjólk.

„Bændur eru hins vegar svolítið uggandi yfir framhaldinu. Það er laus búvörusamningur frá næstu áramótum og greinin stendur frammi fyrir gríðarlegum fjárfestingum vegna krafna um velferð dýra. Skotið hefur verið á að það kosti fjárfestingu upp á 18-20 milljarða og ekki verður ráist í það á stuttum tíma. Það er þó mikill framkvæmdahugur í mönnum, út af þessu.“

Íslandsmetin
» Ólafur Magnússon í Hraunkoti í Landbroti á Íslandsmetið í meðalafurðum búa. Kýr hans mjólkuðu 8.340 kg að meðaltali á árinu 2011.
» Sú kýr sem mjólkað hefur mest á einu ári er Blúnda 468 á Helluvaði á Rangárvöllum. Hún mjólkaði 13.327 kg árið 2006.