Nýlega var gengið frá lokauppgjöri milli ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja vegna höfuðstólsleiðréttingar fasteignaveðlána. Frá þessu er greint á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Nýlega var gengið frá lokauppgjöri milli ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja vegna höfuðstólsleiðréttingar fasteignaveðlána. Frá þessu er greint á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Greiðslan var lokaáfangi í framkvæmd aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána.

Bent er á að við samþykkt leiðréttinganna var lánum umsækjenda skipt í frumlán og leiðréttingarlán. Greiðslubyrði lántakanda lækkaði strax við samþykkt um alla höfuðstólsleiðréttinguna en ríkið tók yfir greiðslu af leiðréttingarláninu. Við lokauppgjör ríkissjóðs hverfur svokallaður leiðréttingarhluti lána af fasteignaveðlánum. Greiðslan hefur þau áhrif að höfuðstóll 51 þúsund fasteignaveðlána lækkar, skv. upplýsingum ráðuneytisins.

Aðgerðir til lækkunar á skuldavanda heimila voru bæði bein niðurfærsla á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar heimild til nýtingar séreignarsparnaðar til að niðurgreiða húsnæðislán eða til að fjárfesta í húsnæði. Sú leið er enn opin og verður til ársins 2017.