Díana Kristín Sigmarsdóttir
Díana Kristín Sigmarsdóttir
Díana Kristín Sigmarsdóttir, markahæsti leikmaður Fjölnis í Olís-deild kvenna, fór á dögunum til reynslu til Molde í Noregi. Hafnaði hún tilboði Norðmanna um að ganga strax til liðs við félagið og mun leika með Fjölni út tímabilið.

Díana Kristín Sigmarsdóttir, markahæsti leikmaður Fjölnis í Olís-deild kvenna, fór á dögunum til reynslu til Molde í Noregi. Hafnaði hún tilboði Norðmanna um að ganga strax til liðs við félagið og mun leika með Fjölni út tímabilið. Ekki er hins vegar útilokað að hún gangi til liðs við Molde í sumar. „Hún er í samningaviðræðum við Fjölni um að framlengja en henni stendur einnig til boða að fara til Molde í sumar,“ sagði Andrés Gunnlaugsson, þjálfari Fjölnis, við Morgunblaðið. kris@mbl.is