Ferðamenn rákust í gær á slasaðan haförn í útjaðri Berserkjahrauns á Snæfellsnesi. Fuglinn, sem er ungi frá því í sumar, er talinn vængbrotinn.
Ferðamenn rákust í gær á slasaðan haförn í útjaðri Berserkjahrauns á Snæfellsnesi. Fuglinn, sem er ungi frá því í sumar, er talinn vængbrotinn. Heimamenn komu höndum yfir hann og fluttu í hundabúr þar sem hann dvaldi þar til honum var komið til Reykjavíkur til frekari athugunar hjá fuglafræðingi.