Zenter Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir hafa gengið til liðs við Zenter sem mannauðsráðgjafar og markþjálfar. Þær eiga að baki áralanga reynslu í málaflokkum tengdum mannauðs- og fræðslumálum og eru báðar ACC-vottaðir markþjálfar.
Zenter
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir hafa gengið til liðs við Zenter sem mannauðsráðgjafar og markþjálfar. Þær eiga að baki áralanga reynslu í málaflokkum tengdum mannauðs- og fræðslumálum og eru báðar ACC-vottaðir markþjálfar. Ágústa hefur unnið í ferðageiranum við mannauðsmál í um 10 ár, m.a. hjá flugfélögunum Primera Air og Wow air og sem ráðgjafi hjá Carpe Diem. Ragnhildur hefur unnið á flestum sviðum mannauðsmála. Hún var jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrarbæjar, lektor við Nordens Folkliga Akademi og vann sem starfsþróunarstjóri hjá Landsvirkjun í 14 ár.