Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska landsliðsins í handknattleik, gat ekki leynt gleði sinni eftir sigurinn gegn Dönum á EM í gærkvöldi en með sigrinum tryggðu Þjóðverjar sér farseðilinn í undanúrslitin. „Við erum gríðarlega ánægðir.

Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska landsliðsins í handknattleik, gat ekki leynt gleði sinni eftir sigurinn gegn Dönum á EM í gærkvöldi en með sigrinum tryggðu Þjóðverjar sér farseðilinn í undanúrslitin.

„Við erum gríðarlega ánægðir. Fyrir utanaðkomandi kom þessi sigur kannski á óvart og við erum komnir í undanúrslit en þetta kemur okkur ekki á óvart,“ sagði Dagur sem hefur unnið mikið meistaraverk með þetta unga þýska lið sem hann er með í höndunum. hjorvaro@mbl.is