— Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þessi unga, siglfirska stúlka, Tinna Hjaltadóttir, sem í febrúar verður sjö ára gömul, er ein af fjölmörgum sem í dag fagna því með brosi á vör að sólin er aftur farin að varpa geislum sínum yfir Siglufjörð eftir 74 daga fjarveru.
Þessi unga, siglfirska stúlka, Tinna Hjaltadóttir, sem í febrúar verður sjö ára gömul, er ein af fjölmörgum sem í dag fagna því með brosi á vör að sólin er aftur farin að varpa geislum sínum yfir Siglufjörð eftir 74 daga fjarveru. Pönnukökur eru víða á borðum í tilefni þessa og í hádeginu munu nemendur í 1.-4. bekk grunnskólans heilsa þeirri gulu með söng í kirkjutröppunum, svo að fátt eitt sé nefnt.