Eftirsóttur Aron Pálmarsson er hugsanlega á leið til Kiel á ný.
Eftirsóttur Aron Pálmarsson er hugsanlega á leið til Kiel á ný. — Ljósmynd/Foto Olimpik
Fallist forráðamenn ungverska liðsins Veszprém á tilboð þýska liðsins THW Kiel í Aron Pálmarsson, landsliðsmann í handknattleik, verður Aron dýrasti handknattleiksmaður sögunnar.

Fallist forráðamenn ungverska liðsins Veszprém á tilboð þýska liðsins THW Kiel í Aron Pálmarsson, landsliðsmann í handknattleik, verður Aron dýrasti handknattleiksmaður sögunnar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vill Kiel kaupa Aron fyrir fimm milljónir evra, sem jafngildir um 710 milljónum króna. Áður hefur Veszprém afþakkað tilboð frá Kiel upp á þrjár milljónir evra.

Hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir handknattleiksmann er tvær milljónir evra þegar PSG klófesti Nikola Karabatic frá Barcelona í fyrra. Fimm milljónir evra er um helmingur veltu THW Kiel á einu ári. Aron er samningsbundinn Veszprém til ársins 2018. Hann kom frá Kiel á liðnu sumri. Íþróttir