Gústav Oscar Arnar fæddist 23. desember 1933. Hann lést 30. desember 2015.

Útför Gústavs fór fram 18. janúar 2016.

Elsku besti afi, það er svo skrýtið að þú sért allt í einu bara farinn.

Það er ekki annað hægt en að hugsa um allar góðu stundirnar sem ég átti með þér. Þú varst alltaf svo góður við mig og vildir allt fyrir mig gera. Ég man alltaf þegar ég kom í pössun til þín og ömmu og þú last alltaf sömu bókina fyrir mig á hverju einasta kvöldi og jafnvel tvisvar í röð. Svo vöknuðum við alltaf eldsnemma og ég dýrkaði að hjálpa þér að gera afahafragraut sem var meira að segja góður. Þú vildir líka alltaf leika við mig, ég man eftir því hvað mér fannst alltaf gaman að fara í feluleikinn þar sem ég faldi mig alltaf á sama stað en þú varst alltaf jafn „hissa“ að finna mig. Þú hefur kennt mér svo margt og ég er ótrúlega heppin að hafa átt svona yndislegan afa. Það er sárt þegar einhver sem er manni svona kær fer en ég veit að þér líður betur núna. Hvíldu í friði, elsku afi minn.

Silja Björk Pálsdóttir.