[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðskiptaferðalög Þeir sem standa frammi fyrir því að velja sér ferðatösku glíma allir við sama vanda: Á að velja harða tösku sem verndar farangurinn betur en tekur mikið pláss í geymslunni eða pakka í mjúka tösku sem má rúlla upp en veitir innvolsinu...

Viðskiptaferðalög

Þeir sem standa frammi fyrir því að velja sér ferðatösku glíma allir við sama vanda: Á að velja harða tösku sem verndar farangurinn betur en tekur mikið pláss í geymslunni eða pakka í mjúka tösku sem má rúlla upp en veitir innvolsinu litla vernd?

Néit kallast ný tegund af ferðatösku sem sameinar eiginleika þeirra hörðu og þeirra mjúku.

Hugvitsamleg hönnunin gerir það að verkum að þegar hörð taskan er tæmd má brjóta hana snyrtilega saman. Handfangið er þannig gert að hengja má töskuna upp á slána í fataskápnum.

Safnað er fyrir Néit á Kickstarter og hefur það farið vel af stað.

ai@mbl.is