Colin Vearncombe
Colin Vearncombe
Söngvarinn Colin Vearncombe, sem gekk undir listamannsnafninu Black, er látinn, 53 ára að aldri. Vearncombe lenti í bílslysi fyrir tveimur vikum og lést á sjúkrahúsi á Írlandi í fyrradag.
Söngvarinn Colin Vearncombe, sem gekk undir listamannsnafninu Black, er látinn, 53 ára að aldri. Vearncombe lenti í bílslysi fyrir tveimur vikum og lést á sjúkrahúsi á Írlandi í fyrradag. Þekktustu lög Black eru „Sweetest Smile“ og „Wonderful Life“ og átti hann að baki 35 ára tónlistarferil. Fyrstu plötuna, Human Features , gaf hann út 1981 undir nafninu Black og þá síðustu, Blind Faith , í fyrra.