Innanhússarkitektinn Rut Káradóttir verður gestur Bókasafns Seltjarnarness í dag kl. 17.30 og mun fjalla um bók sína Inni sem kom út fyrir skömmu. Í henni er fjallað um hönnun Rutar allt frá árinu 1999.
Í spjallinu mun Rut segja frá starfi sínu og menntun og hvernig hún nálgast verkefni sín. Hún býður gestum að skyggnast inn í hönnun sína í máli og myndum, varpar ljósi á fagið og fjallar um bestu lausnirnar.
Erindi Rutar markar upphaf nýrrar viðburðaraðar bókasafnsins á þessu ári. Í henni verður sjónum er beint að arkitektúr og hönnun frá ýmsum sjónarhornum fyrir börn og fullorðna.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.