Sören Frederiksen sem lék með KR á síðasta keppnistímabili í Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefur verið seldur til danska 1. deildar félagsins Viborg. Sören lék 24 leiki með KR í deild og bikar og skoraði í þeim leikum fimm mörk.
Sören Frederiksen sem lék með KR á síðasta keppnistímabili í Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefur verið seldur til danska 1. deildar félagsins Viborg.
Sören lék 24 leiki með KR í deild og bikar og skoraði í þeim leikum fimm mörk.
„Við fengum gott tilboð í Sören og við ákváðum að taka því. Okkur fannst við ekki geta hafnað tilboðinu, tilboðið var gott og svo vildum við leyfa Sören að spreyta sig í Danmörku á nýjan leik,“ sagði Kristinn Kjærnested í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.