Podium Sjöfn Þórðardóttir, samskiptaráðgjafi, viðburðastjórnandi og verkefnastjóri, hefur gengið til liðs við Podium en hún hefur síðustu tvö árin starfað sem framkvæmdastjóri Landssambands sjálfstæðiskvenna.
Podium
Sjöfn Þórðardóttir, samskiptaráðgjafi, viðburðastjórnandi og verkefnastjóri, hefur gengið til liðs við Podium en hún hefur síðustu tvö árin starfað sem framkvæmdastjóri Landssambands sjálfstæðiskvenna. Sjöfn starfaði áður við kennslu í Hofsstaðaskóla í Garðabæ en hefur undanfarin misseri sinnt forfallakennslu hjá Grunnskóla Seltjarnarness samhliða öðrum störfum. Sjöfn hefur mikla reynslu af stjórnun í samskiptamálum og viðburðastjórnun fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og opinbera aðila. Hún útskrifaðist með BEd-gráðu í grunnskólakennarafræðum á íslenskukjörsviði frá HÍ.