Kevin de Bruyne
Kevin de Bruyne
Manchester City og Everton mættust í seinni leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins á Etihad Stadium í gærkvöldi.

Manchester City og Everton mættust í seinni leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins á Etihad Stadium í gærkvöldi.

Everton hafði betur í fyrri leik liðanna með tveimur mörkum gegn einu og Manchester City þurfti því að vinna upp eins marks forskot Everton til þess að komast í úrslitaleikinn.

Lokatölur í leiknum urðu 3:1 Manchester City í vil sem bar þar af leiðandi sigur úr býtum í viðureigninni og mætir Liverpool í úrslitaleiknum.