— Morgunblaðið/Golli
Þegar andstæður hins heita og kalda mætast verður útkoman sérstakt sjónarspil. Veitumenn voru í gærdag að gera við vatnspípur í Laugardalnum í Reykjavík og var grafið niður að lögnum þar.
Þegar andstæður hins heita og kalda mætast verður útkoman sérstakt sjónarspil. Veitumenn voru í gærdag að gera við vatnspípur í Laugardalnum í Reykjavík og var grafið niður að lögnum þar. Er óhætt að segja að þarna hafi allt kraumað og mallað svo gufan frá heita vatninu steig hátt í frostinu, en næstu dagana verður brunagaddur og rysjótt tíð með umhleypingum, segja veðurfræðingar.