Stefnir Arnar Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni. Frá árinu 2012 hefur hann starfað sem sjóðstjóri í framtaksfjárfestingum hjá Stefni. Arnar hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2002, m.a.
Stefnir Arnar Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni. Frá árinu 2012 hefur hann starfað sem sjóðstjóri í framtaksfjárfestingum hjá Stefni. Arnar hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2002, m.a. sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og fyrirtækjaráðgjafar hjá Arion banka. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Hann situr nú í stjórn Festar og annarra félaga tengdra rekstri framtaksfjárfestinga hjá Stefni. Arnar er með BSc próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA frá INSEAD í Frakklandi jafnframt því að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.