Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, heiðraði þrjár athafnakonur í Hörpu fyrir skömmu. Athöfnin fór fram í Norðurljósasalnum að viðstöddum fjölda karla og kvenna úr viðskipta- og atvinnulífinu.
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, heiðraði þrjár athafnakonur í Hörpu fyrir skömmu. Athöfnin fór fram í Norðurljósasalnum að viðstöddum fjölda karla og kvenna úr viðskipta- og atvinnulífinu. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður félagsins, ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra athafnakonunum viðurkenningarnar.