Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson — Morgunblaðið/Kristinn
Stefán Einar Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarfréttastjóri á viðskiptaritstjórn Morgunblaðsins. Stefán hefur starfað á Morgunblaðinu undanfarið ár en hann var formaður VR og Landssambands íslenskra verslunarmanna á árunum 2011-2013.

Auk þess hefur hann meðal annars sinnt kennslu við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og Opna háskólann. Stefán er með meistaragráðu í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands og cand.theol.-próf frá sama skóla.

Með ráðningu aðstoðarfréttastjóra hyggst Morgunblaðið leggja enn frekari áherslu á öfluga umfjöllun um viðskipti. Fréttastjóri viðskipta er Sigurður Nordal.