Ferðamenn þessir settust stundarkorn niður á bekk á Arnarhóli í góða veðrinu í gær og horfðu niður í stóra holu sem blasti við þeim.
Ferðamenn þessir settust stundarkorn niður á bekk á Arnarhóli í góða veðrinu í gær og horfðu niður í stóra holu sem blasti við þeim. Vel má vera að þeir hafi velt vöngum yfir því hverju þetta sætti, en á þessu eftirsótta svæði miðbæjarins stendur til að reisa mikla byggingu þótt deilt sé um útlit hennar og hvaða starfsemi sé best að hún hýsi. Meðal annars hefur verið rætt um að hún hýsi starfsemi á vegum stjórnarráðsins. Tíminn einn mun leiða í ljós hvað verður; kannski verslun eða einhver þjónusta.