Öflugur Kristján Björn Tryggvason hefur safnað mest í Mottumars.
Öflugur Kristján Björn Tryggvason hefur safnað mest í Mottumars.
Kristján Björn Tryggvason hefur safnað mest af öllum í átakinu Mottumars sem lýkur í dag, en hann hefur safnað rúmlega 1,3 milljónum króna.
Kristján Björn Tryggvason hefur safnað mest af öllum í átakinu Mottumars sem lýkur í dag, en hann hefur safnað rúmlega 1,3 milljónum króna. Kristján hefur barist við heilakrabbamein í tíu ár og hefur hann farið í þrjár aðgerðir, geislameðferð og tvær lyfjameðferðir. Kristján hefur verið öflugur stuðningsmaður Mottumars síðustu ár en hann gengur á milli fyrirtækja og safnar peningum í gamla málningardós.