Friðgeir Einarsson
Friðgeir Einarsson
Leikhópurinn Kriðpleir sýnir Krísufund í Mengi í kvöld og annað kvöld kl. 21. Í verkinu, sem frumsýnt var á liðnu ári, eru Friðgeir Einarsson og félagar hans að setja saman meiriháttar umsókn í listasjóð.
Leikhópurinn Kriðpleir sýnir Krísufund í Mengi í kvöld og annað kvöld kl. 21. Í verkinu, sem frumsýnt var á liðnu ári, eru Friðgeir Einarsson og félagar hans að setja saman meiriháttar umsókn í listasjóð. Með Friðgeiri á sviðinu eru félagar hans í Kriðpleir, Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur Bragason. Sýningin tekur 80 mínútur í flutningi og er án hlés. Miðar eru seldir á vefnum midi.is.