Árni Valur Viggósson , Víðilundi 24, Akureyri, er 85 ára í dag. Árni Valur er rafvirkjameistari, símsmíðameistari, var ljósameistari hjá Leikfélagi Akureyrar í 20 ár og átti þar líka 30 ára leikaraferil.
Árni Valur Viggósson , Víðilundi 24, Akureyri, er 85 ára í dag. Árni Valur er rafvirkjameistari, símsmíðameistari, var ljósameistari hjá Leikfélagi Akureyrar í 20 ár og átti þar líka 30 ára leikaraferil. Eiginkona Árna Vals er Unnur Þorsteinsdóttir, samanlagt eiga þau 11 börn og sand af barna- og barnabarnabörnum. Árni Valur er að heiman í dag en sendir vinum og ættingjum kveðjur.