Samtök leikjaframleiðenda, IGI – Icelandic Game Industry, héldu ársfund sinn á þriðjudag á Vox Club á Hilton Reykjavik Nordica. Fjöldi gesta sótti fundinn, en á Íslandi eru starfandi 18 fyrirtæki sem fást við leikjaframleiðslu og þar af 12 sem eiga aðild að samtökunum.
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, flutti erindi á fundinum auk Þorsteins Baldurs Friðrikssonar, forstjóra Plain Vanilla Games, Kjartans Emilssonar, forstjóra Sólfars, og David James Thue, sem kennir leikjaforritun við Háskólann í Reykjavík.
Að jafnaði 18% vöxtur
Fjallaði Hilmar Veigar um uppsafnaða veltu og áhrif íslenska tölvuleikjageirans á tímabilinu 2008 til 2015. Nam velta greinarinnar samtals 67,8 milljörðum króna á þessum árum og árlegur vöxtur nam 18% á ári að meðaltali. Þá sýna tölurnar að 95% af tekjum íslenskra leikjaframleiðenda koma frá útlöndum.Þegar tímabilið 2008 til 2013 er skoðað kemur í ljós að velta var 46,3 milljarðar og tekjur ríkissjóðs af starfsemi fyrirtækjanna 6,6 milljarðar, í formi staðgreiðslu starfsmanna, tryggingagjalds og tekjuskatts af hagnaði.
Upplýsti Hilmar Veigar að CCP hygðist fjárfesta fyrir fjóra milljarða króna í nýsköpun á þessu ári og benti hann á að fyrirtæki í leikjabransanum leituðu þangað í heiminum þar sem umhverfi til nýsköpunar væri hvetjandi, s.s. með tilliti til endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði.
IGI er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins og eiga eftirfarandi leikjaframleiðendur aðild: CCP, Plain Vanilla Games, Radiant Games, Lumenox, Solid Clouds Games, Rosamosi, Skema, Novomatic, Convex, Locatify, Ymir Mobile, Mystack og Jivaro. ai@mbl.is