Adam Driver
Adam Driver
Leikarinn Adam Driver, sem fer með hlutverk illmennisins Kylo Ren í nýjustu Star Wars -myndinni, kennir vanrækslu foreldra Ren, Lilju prinsessu og Hans Óla, um það að hann hafi snúist á sveif með hinum illu öflum, myrku hliðinni.
Leikarinn Adam Driver, sem fer með hlutverk illmennisins Kylo Ren í nýjustu Star Wars -myndinni, kennir vanrækslu foreldra Ren, Lilju prinsessu og Hans Óla, um það að hann hafi snúist á sveif með hinum illu öflum, myrku hliðinni. Driver segir Ren, réttu nafni Ben Solo, ekki hafa fengið nægan stuðning frá foreldrum sínum þegar hann áttaði sig á mættinum sem hann býr yfir, og því fór sem fór.