SÍA Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur verið kjörin formaður SÍA, Samtaka íslenskra auglýsingastofa. Hún er fyrsta konan sem gegnir embættinu, en hún hefur setið í stjórn SÍA undanfarin þrjú ár.
SÍA Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur verið kjörin formaður SÍA, Samtaka íslenskra auglýsingastofa. Hún er fyrsta konan sem gegnir embættinu, en hún hefur setið í stjórn SÍA undanfarin þrjú ár.

Elín Helga er sálfræðimenntuð og hefur unnið í auglýsingageiranum í sextán ár, fyrst sem birtingastjóri hjá auglýsingastofunni Auk og og Auglýsingamiðlun, en undanfarin ellefu ár sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Hvíta húsinu, þar sem hún er einn eigenda.

Ásamt henni voru kjörnir í stjórn SÍA þeir Agnar Tryggvi Le'macks frá Jónsson og Le'macks og Hörður Lárusson frá Brandenburg.

Sjö auglýsingastofur eiga aðild að SÍA, sem er samstarfsfélag Félags atvinnurekenda, sem hýsir samtökin og sér um skrifstofuþjónustu fyrir þau.