Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lýsti undrun sinni á tíðindum gærkvöldsins í samtali við mbl.is. Hún telur sig hafa átt tilkall til ráðherraembættis.
„Ég óska að sjálfsögðu Lilju Alfreðsdóttur alls hins besta í starfi en ég tel að nú sé búið að ganga fram hjá mér varðandi val á ráðherrum í annað sinn. Ég er því fyrst og fremst undrandi,“ segir Vigdís.
Þvert á hefðir og venjur
Hún segir ákveðnar óskrifaðar reglur vera innan þingflokksins um úthlutun ráðherraembætta.„Oddvitar flokksins í kjördæmunum hafa yfirleitt verið í forgangi þegar kemur að því. Ég vann stærsta sigur sem Framsóknarflokkurinn hefur landað í Reykjavík, í hundrað ára sögu hans.“
Þá segir Vigdís ótvíræðan stuðning hafa verið innan þingflokksins um að Sigurður Ingi tæki við embætti forsætisráðherra.
„Það var í raun ákveðið í gær að mínu mati, á þingflokksfundinum, þar sem Sigmundur Davíð lagði fram tillöguna.“