Doktor Klukowski. A-Allir
Norður | |
♠G65 | |
♥D86 | |
♦D987 | |
♣Á87 |
Vestur | Austur |
♠974 | ♠D |
♥G10972 | ♥ÁK54 |
♦Á5 | ♦K1062 |
♣965 | ♣D432 |
Suður | |
♠ÁK10832 | |
♥3 | |
♦G43 | |
♣KG10 |
Suður spilar 4♠.
Doktor Julian Klukowski fæddist 1939 í Varsjá, lærði þar stærðfræði og brids og er prófessor í báðum greinum. Klukowski var hér í vestur og átti út gegn 4♠.
Spilið er frá úrslitaleik Hallarbikarsins (Palace Cup) um síðustu helgi, en það er fjögurra daga boðsmót sem samtök pólskra atvinnuspilara (bridge24) standa fyrir einu sinni á ári í Varsjá. Austur (Kowalski) opnaði á 1♦, suður (Dubinin) sagði 1♠ og norður (Gromov) lyfti í 2♠. Dubinin hélt áfram með 3♦, Gromov stakk upp á 3G, en Dubinin breytti í 4♠.
Klukowski sá nú fyrir sér tígulfyrirstöðu í blindum (hugsanlega ♦KG) og kom út með ♦5, undan ásnum! Glannalegt útspil hjá stærðfræðingnum og of hugmyndaríkt fyrir Kowalski, sem lét tvistinn duga. Þar með slapp sagnhafi við tígulstunguna og Dubinin vann sitt spil með því að finna laufdrottningu.
Hinum megin fóru A-V einn niður á 3♥.