Orkustofnun hefur samþykkt umsókn Vestur Verks ehf. um rannsóknarleyfi til könnunar á hagkvæmni hugsanlegrar virkjunar Hundsár í Skötufirði og Hestár í Hestfirði í Súðavíkurhreppi. Leyfið er til fjögurra ára.

Verði reist stærri virkjun en 10 MW á svæðinu verður þó að taka hana til skoðunar á vettvangi rammaáætlunar. Virkjun í Skötufirði er áætluð 17 MW og í Hestfirði 5-6 MW.
Jarðrask þarf að lágmarka
Ekki kemur fram í umsókninni hvernig aðkoma að virkjunarsvæðinu kemur til með að verða. Í umsögnum um verkefnið bárust ítrekaðar athugasemdir um að jarðraski, m.a. vegna hugsanlegrar vegavinnu, verði haldið í lágmarki og að vinnunni verði staðið á þann hátt að verði ekki af virkjun verði hægt að færa svæðið aftur til fyrra horfs.