Birna lauk BSc-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, MSc-gráðu í félags- og vinnusálfræði frá sama skóla og stundaði nám í arkitektúr við Royal Danish Academy of Fine Art. Birna er vottaður leiðbeinandi í LEGO® SERIOUS PLAY® sem er aðferð sem nýtist meðal annars í stefnumótun fyrirtækja.
Birna starfaði sem mannauðsráðgjafi hjá THG arkitektum á árunum 2012-2016, hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki í mannauðsstjórnun, Connect Billund, og hjá LEGOLANDI í Danmörku sem liðsstjóri og leiðbeinandi 2015-2016. Birna hefur verið með LEGO® SERIOUS PLAY® vinnustofur í fyrirtækjum, m.a. fyrir Lego, og hefur setið í stjórn alþjóðlega skólans í Billund.
Attentus – mannauður og ráðgjöf veitir þjónustu og ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri út frá áherslum mannauðsstjórnunar.