Jón Guðni Fjóluson
Jón Guðni Fjóluson
Jón Guðni Fjóluson opnaði markareikning sinn fyrir Norrköping þegar liðið lagði Kalmar, 4:1, í annarri umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi.

Jón Guðni Fjóluson opnaði markareikning sinn fyrir Norrköping þegar liðið lagði Kalmar, 4:1, í annarri umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi.

Jón Guðni, sem kom frá Sundsvall í sumar, spilaði allan leikinn og skoraði annað mark Norrköping með skalla eftir hornspyrnu. Arnór Ingvi Traustason var einnig í byrjunarliði Norrköping. Þetta var fyrsti sigur liðsins á nýju tímabili.

Viðar Örn Kjartansson og Kári Árnason voru í byrjunarliði Malmö sem tapaði á útivelli fyrir Jönköpings Södra, 3:2. Malmö hefur þrjú stig eftir tvo leiki. Þá spilaði Hjálmar Jónsson allan leikinn fyrir Gautaborg sem lagði Häcken á heimavelli, 1:0. Hjálmar og félagar hafa unnið fyrstu tvo leiki sína.