Sunna Jónsdóttir og stöllur hennar hjá Skrim unnu heldur betur spennusigur þegar Sola kom í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær.
Sunna Jónsdóttir og stöllur hennar hjá Skrim unnu heldur betur spennusigur þegar Sola kom í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær.
Þegar hálf mínúta var eftir jafnaði Sola metin í 31:31, en átta sekúndum fyrir leikslok kom sigurmark Skrim sem fór því með nauman sigur af hólmi, 32:31.
Sunna var atkvæðamikil hjá Skrim og skoraði sex mörk úr níu skotum og var næstmarkahæst hjá liði sínu. Skrim er í tíunda og þriðja neðsta sæti deildarinnar, nú fjórum stigum á eftir Sola sem er sæti ofar.