Ferðaþjónusta Icelandair flutti 221 þúsund farþega í millilandaflugi í síðasta mánuði og voru þeir 21% fleiri en í mars í fyrra. Framboðsaukning var 20% á milli ára.
Ferðaþjónusta Icelandair flutti 221 þúsund farþega í millilandaflugi í síðasta mánuði og voru þeir 21% fleiri en í mars í fyrra. Framboðsaukning var 20% á milli ára. Sætanýting hefur aldrei verið betri í mars, var 84,0% og jókst um 1,4 prósentustig á milli ára. Farþegum í innanlandsflugi og Grænlandsflugi fjölgaði um 2% á milli ára og fraktflutningar jukust um 1%. Seldum gistinóttum á hótelum Icelandair Group fjölgaði um 9% miðað við mars á síðasta ári.