Náttúruperla Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru um 40 landeigendur.
Náttúruperla Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru um 40 landeigendur. — Morgunblaðið/Ómar
Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Annað stig nauðungarsölu á jörðinni Felli, sem meðal annars nær til um helmings Jökulsárlóns, fer fram í dag. Þann 10. mars sl.

Anna Sigríður Einarsdóttir

annaei@mbl.is

Annað stig nauðungarsölu á jörðinni Felli, sem meðal annars nær til um helmings Jökulsárlóns, fer fram í dag.

Þann 10. mars sl. féllst sýslumaðurinn á Suðurlandi á beiðni um nauðungarsölu til slita á sameign á jörðinni Felli í Austur-Skaftafellssýslu, sem m.a. nær til um helmings Jökulsárlóns. Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru landeigendur, sem eiga jörðina í sameiningu, um 40 talsins, sem rekja má til óskipts dánarbús. Jörðinni tilheyrir jafnframt um helmingur Jökulsárlóns til móts við íslenska ríkið.

Jökulsárlón er ein af þekktustu náttúruperlum Íslands og sýna tölur að um þriðjungur ferðamanna skoðar lónið á ferð sinni um Ísland. Við lónið hefur margvísleg ferðaþjónusta verið starfrækt og hafa eigendur Fells átt í deilum vegna þessa, sem og með hvaða hætti eigi að haga uppbyggingu á svæðinu. Ekki hefur tekist að leysa úr þeim deilumálum og fyrir vikið féllst sýslumaður á Suðurlandi á gerðarbeiðni eigenda um að bjóða landið upp.

Heimildir Morgunblaðsins í síðustu viku gáfu til kynna að mikill áhugi væri á kaupum á jörðinni og að erlendir aðilar á EES-svæðinu hefðu m.a. lýst áhuga sínum á kaupum. Vesturbakki lónsins er þjóðlenda og ekki má raska honum með byggingum samkvæmt skipulagi, en deiliskipulag heimilar takmarkaða uppbyggingu á austurbakkanum, þeim hluta landsins sem er á leið á uppboð.

Metin á allt að tvo milljarða

Ljóst má telja að háar upphæðir fáist fyrir jörðina og hafa verið nefndar tölur frá hundruðum milljóna hið minnsta og allt upp í tvo milljarða.

Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, hefur lýst því að bæjaryfirvöld á Hornafirði óttist að seljist landið fyrir offjár leiði það til þess að þrýst verði á um mikla uppbyggingu sem geti spillt svæðinu. Telur hann ríkið eiga að meta hvort það eigi að kaupa landið svo það hafi stjórn á því hvers konar uppbygging fari þar fram.