Dómkirkjan Samkvæmt skiltum sunnan kirkjunnar er bannað að leggja þar og mörg dæmi um að sektir bíði kirkjugesta að athöfn lokinni.
Dómkirkjan Samkvæmt skiltum sunnan kirkjunnar er bannað að leggja þar og mörg dæmi um að sektir bíði kirkjugesta að athöfn lokinni. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er búið að vera viðvarandi vandamál í langan tíma. Bílastæðamál eru orðin fastur liður á fundum nefndarinnar. Það eru nokkur ár síðan byrjað var að sekta á messutíma.

Björn Jóhann Björnsson

bjb@mbl.is

„Þetta er búið að vera viðvarandi vandamál í langan tíma. Bílastæðamál eru orðin fastur liður á fundum nefndarinnar. Það eru nokkur ár síðan byrjað var að sekta á messutíma. Þetta gefur verið mjög óþægilegt fyrir fólk,“ segir Marinó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar, en nokkur dæmi eru þess að kirkjugestir sem lagt hafa bílum sínum næst kirkjunni, undir suðurvegg hennar, hafi verið sektaðir af lögreglu og stöðumælavörðum.

Þannig biðu 10 þúsund króna sektir nokkurra kirkjugesta sem sóttu messu árla morguns síðasta páskadag. Þá er dæmi þess að brúðarbíll hafi verið sektaður fyrir framan kirkjuna.

Sóknarnefndin hefur rætt þessi mál við lögregluyfirvöld og mætt þar skilningi á aðstæðum hjá yfirmönnum. Marinó segir sveigjanleikann þó ekki alltaf til staðar, eins og þegar laganna verðir tóku upp sektarmiða að morgni páskadags, annað árið í röð.

Dæmi er um kirkjugest sem fékk sekt fyrir að leggja bíl sínum sunnan kirkjunnar vegna útfarar frænda hans síðasta sumar. Sektinni var harðlega mótmælt en á hana söfnuðust dráttarvextir í nokkrar vikur þar til að hún var loks felld niður. Málstaður kirkjugestsins var þó ekki viðurkenndur, heldur stóð í svari Bílastæðasjóðs að málið hefði verið fellt niður sökum dráttar á afgreiðslu þess.

Meiri skilning skortir

„Þetta hefur áhrif á messusókn hjá okkur. Það er ekki gaman að koma út úr kirkjunni, hvort sem það er jarðarför eða hjónavígsla, og þá bíður sektarmiði upp á 10 þúsund krónur á bílnum. Okkur finnst skorta á meiri skilning á aðstæðum,“ segir Marinó en tekur þó fram að óformlegt samkomulag hafi tekist um að Dómkirkjan láti Bílastæðasjóð vita ef jarðarför er fram undan. Þá komi stöðumælaverðir ekki á Kirkjutorg á meðan jarðarför er.

Þrátt fyrir þetta hafa bílar prestanna ekki alltaf sloppið við sekt. Þeim hefur verið lagt við skrúðhúsið til þess m.a. að geta farið strax í kjölfar líkfylgdar eftir útför. Að sögn Marinós hefur það fengist í gegn hjá borginni að taka frá tvö stæði fyrir prestana við skrúðhúsið. Eftir er að merkja þau sem einkastæði og verður það gert á næstu dögum, en fjarlægja þurfti ljósastaur til að koma þessu við.

„Við erum líka að reyna að fá það í gegn hjá borginni að undanþága frá gjaldskyldu við útfarir gildi einnig um aðrar athafnir í kirkjunni. Það hefur tekið góðan tíma að eiga í þessum samskiptum,“ segir hann.

Dísilfnykur frá rútunum

Marinó segir að vegna athafna á sunnudagsmorgnum hafi tekist að leysa hluta bílastæðavandans í samráði við Alþingi. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, féllst á beiðni dómkirkjuprests og fékk það í gegn að opna bílastæði gegnt Þórshamri á sunnudagsmorgnum.

Að sögn Marinós eru einnig dæmi þess að hótelgestir taki bílastæði sem annars myndu nýtast kirkjugestum. Þá sé nokkur ami af rútum sem leggi á messutíma fyrir framan kirkjuna til að sækja eða skila ferðamönnum og hótelgestum. „Rúturnar eru þarna í gangi og stundum finnum við dísilolíufnykinn leggja inn í kirkjuna.“

Þá er bílastæðavandi við Safnaðarheimili Dómkirkjunnar, sérstaklega eftir að framkvæmdir hófust á Íslandsbankalóðinni.

Reynt að sýna skilning

Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, segir starfsmenn sína sýna eins mikinn skilning og sveigjanleika og mögulegt sé þegar athafnir fari fram í Dómkirkjunni.

„Stundum getur verið erfitt að meta hverjir eru þarna við jarðarför og hverjir ekki. Ef við myndum lýsa því yfir að við sektuðum ekki við jarðarfarir yrðu það ekki jarðarfarargestir sem kæmu fyrstir á staðinn,“ segir Kolbrún.

Hún bendir á að einhver ástæða sé fyrir því að bannskilti hafi verið sett upp þarna við kirkjuna. Líklega sé það vegna þess að um gönguleið sé að ræða. „Við ákveðum ekki hvar má leggja og hvar ekki, það fer fram á umhverfissviði borgarinnar,“ segir hún.

Kolbrún segir ákveðinn vanda skapast í miðborginni þegar fjölmennar athafnir fari fram, kannski samtímis í Dómkirkjunni og Fríkirkjunni. Vegna framkvæmda í miðborginni sé búið að taka af mörg bílastæði, eins og við Íslandsbanka.

Kolbrún vísar því á bug að brúðarbílar séu í dag sektaðir við Dómkirkjuna. Hún viti eitt dæmi þess fyrir mörgum árum en sá stöðumælavörður hljóti að hafa fengið tiltal.