Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga í dag, fimmtudaginn 14. apríl, klukkan 13.30 í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit.

Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar. Fram að þessu hafa fyrirtækin sjálf boðað slíka fundi. Þess í stað boðar nú Umhverfisstofnun opna kynningarfundi sem eru haldnir árlega um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar, segir í frétt frá stofnuninni.

Flutt verða fimm erindi og að þeim loknum verða umræður.