Aðalheiður Guðgeirsdóttir
Aðalheiður Guðgeirsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Arion banki Aðalheiður Guðgeirsdóttir hefur tekið við nýju starfi sem svæðisstjóri Arion banka á Keflavíkurflugvelli en þann 1. maí mun bankinn hefja þar starfsemi.
Arion banki Aðalheiður Guðgeirsdóttir hefur tekið við nýju starfi sem svæðisstjóri Arion banka á Keflavíkurflugvelli en þann 1. maí mun bankinn hefja þar starfsemi. Aðalheiður starfaði sem útibússtjóri í Kópavogi frá árinu 2010 til 2016 en var einnig svæðisstjóri í Kraganum, þ.e. Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði frá árinu 2013.

Þá tekur Hafdís Hansdóttir við starfi Aðalheiðar sem útibússtjóri Arion banka í Kópavogi og svæðisstjóri Kragans. Hafdís hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans síðastliðin sextán ár, þar af síðastliðin tvö ár sem sviðsstjóri þjónustukjarna Arion banka á viðskiptabankasviði.