Gestur Roscoe Mitchell flytur eigin tónlist en einnig mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk eftir hann í nýjum hljómsveitarútsetningum.
Gestur Roscoe Mitchell flytur eigin tónlist en einnig mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk eftir hann í nýjum hljómsveitarútsetningum. — Ljósmynd/Elvira Faltermeier
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Tectonics-tónlistarhátíðin hefst í dag í Hörpu og stendur yfir í tvo daga. Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir hátíðinni og sem fyrr er Ilan Volkov listrænn stjórnandi hennar.

Inga Rún Sigurðardóttir

ingarun@mbl.is

Tectonics-tónlistarhátíðin hefst í dag í Hörpu og stendur yfir í tvo daga. Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir hátíðinni og sem fyrr er Ilan Volkov listrænn stjórnandi hennar. Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin. Áhersla er á nýja tónlist og verða haldnir átta tónleikar. Dagskráin stendur yfir frá kl. 18-23 báða dagana og fer fram í Eldborg, Norðurljósum og opnum rýmum Hörpu.

Meðal listamanna sem koma fram auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru Roscoe Mitchell (Bandaríkin), Peter Ablinger (Austurríki), Goodiepal (Danmörk) og Séverine Ballon (Frakkland).

Tectonics er gjarnan auglýst sem óvenjuleg tónlistarhátíð en hver er helsta sérstaða hátíðarinnar?

„Það eru fleiri sinfóníuhjómsveitir í heiminum að gera svipaða hluti, og Tectonics er líka haldin á nokkrum stöðum. Enn fremur eru líka til sambærilegar hátíðir þar sem verið er að reyna að setja sinfóníuhljómsveitir í nýtt samhengi. En það sem er mjög sérstakt við hátíðina hér á landi er að það er búið að kanna nýjar lendur í verkefnavali innan Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessari hátíð. Það eru tónskáld sem hafa nánast ekki heyrst á Íslandi sem eru orðin klassísk í samtímatónlist sem eru fyrst flutt í samhengi við Tectonics,“ segir Berglind María Tómasdóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar.

Tectonics var fyrst haldin af Sinfóníuhljómsveitinni árið 2012 en hefur síðan ferðast til Glasgow, Adelaide, New York, Tel Aviv og Óslóar.

Mismunandi stefnur mætast

Berglind María segir að annað óvenjulegt við hátíðina sé að þar mætist mismunandi tónlistarstefnur; Sinfóníuhljómsveitin mæti öðrum geirum tónlistar. „Bæði hafa margir raftónlistarmenn komið fram og fólk sem vinnur á mörkum myndlistar og tónlistar og fleira,“ segir hún.

Er þetta þá leið til að ná til nýs hóps sem er ekki fastagestur á Sinfóníutónleikum?

„Já, vonandi. Það er komin hefð á hátíðina á Íslandi þannig að fólk sem fylgist með veit að hverju það gengur. En við erum alltaf að reyna að þróa hlutina áfram og prófa. Það sem er kannski nýtt í ár er að það er óvenjulega mikið samstarf við Listaháskólann, sem er fengur fyrir báða aðila,“ segir hún og nefnir í því samhengi málstofu sem fór fram fyrr í vikunni um stöðu sinfóníuhljómsveita í samtímanum.

Sinfóníuhljómsveitin frumflytur alls sjö ný verk, sem flest verða frumflutt á heimsvísu á hátíðinni. Höfundar þessara verka eru Jim O'Rourke, Peter Ablinger, Roscoe Mitchell, Frank Denyer, Davíð Franzson, Þráinn Hjálmarsson og María Huld Markan Sigfúsdóttir. Auk þess koma fram í Norðurljósasal Hörpu Borgar Magnason, Kira Kira, S.L.Á.T.U.R. og fleiri.

Verk samin inn í rýmið

Jafnframt verða flutt ný verk í opnu rými Hörpu eftir Inga Garðar Erlendsson og Hafdísi Bjarnadóttur. Í verkum í opnu rými fá gestir að njóta krafta Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nemenda Listaháskóla Íslands, Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts og Skólahljómsveitar Kópavogs.

„Það er svo magnað við bæði verkin sem eru flutt í opna rýminu að það er verið að vinna mikið með rýmið. Þau eru samin með rýmið í huga. Verk Hafdísar stjórnast af hreyfingu ljósanna í glerhjúpnum, þau elta hreyfinguna í hljóðum. Verkið hans Inga er síðan byggt upp í kringum stóra stigann í anddyrinu sem nær upp á aðra hæð. Þarna er hægt að upplifa Hörpu á nýjan hátt.“

Helsti gestur hátíðarinnar í ár er saxófónleikarinn Roscoe Mitchell. „Það er mikill fengur að komu þessa merka tónlistarmanns sem er einn af stofnmeðlimum the Art Ensemble of Chicago og á að baki afar farsælan feril sem spannar áratugi,“ segir í tilkynningu.

Roscoe Mitchell flytur eigin tónlist en einnig mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk eftir hann í nýjum hljómsveitarútsetningum.

„Lokatónleikarnir verða líka mjög spennandi og mikil veisla. Kira Kira verður með svo marga á sviðinu, með risastórt band, kór og vídeó. Svo er Goodiepal með verk sem er ekki flutt hefðbundið á sviði heldur er það rýmisverk. Hann verður með stóran hóp flytjenda með sér,“ segir Berglind María að lokum.