Margar hliðar. V-NS
Norður | |
♠DG6 | |
♥108 | |
♦ÁD1064 | |
♣G98 |
Vestur | Austur |
♠K8 | ♠107532 |
♥872 | ♥-- |
♦KG85 | ♦973 |
♣7642 | ♣ÁKD53 |
Suður | |
♠Á94 | |
♥ÁKDG9543 | |
♦2 | |
♣10 |
Suður spilar 6♥.
Það eru margar hliðar á þessu spili Íslandsmótsins. Ein er þessi: Hvað á austur að segja í þriðju hendi eftir pass vesturs og norðurs? Á hann að passa, opna á einum/tveimur spöðum, eða jafnvel útspilsvísandi laufi? Allt kemur til greina, en eðlileg laufsögn hefði heppnast vel í þessu tilfelli. Það þarf nefnilega galdravörn til að hnekkja 6♥ – lauf út og tígul til baka frá austri í öðrum slag upp í ♦ÁD10!
Ekki þar fyrir. Slemma var aðeins spiluð á þremur borðum (af 40). Eitt par reyndi 6G með afleitum árangri (fjóra niður), en tvö pör spiluðu 6♥. Sveinbjörn Eyjólfsson vann slemmuna eftir trompútspil. Hann svínaði einfaldlega tíguldrottningu og henti laufinu heima í tígulásinn. Gaf bara á spaðakóng. Annar sagnhafi fór niður eftir lauf út og meira lauf í slag tvö. Fann ekki þá langsóttu vinningsleið að klára trompin og þvinga vestur í hörðu litunum.