Helgi Áss Grétarsson
Helgi Áss Grétarsson
Eftir Helga Áss Grétarsson: "Stjórnskipun Íslands stendur traustum fótum. Það sannaðist í fárviðri stjórnmálanna í byrjun apríl síðastliðins. Óráð væri að umbylta stjórnarskránni."

Stjórnskipun Íslands hefur meðal annars það að markmiði að tryggja festu og jafnvægi í samskiptum þeirra sem fara með ríkisvald. Að þessu leyti hefur gildandi stjórnarskrá á Íslandi jafnan virkað þegar á hefur reynt. Þar hefur forsetaembættið átt þátt í að móta framvindu mála.

Þannig urðu ríkisstjórnarskipti í ársbyrjun 2009 í eldfimu ástandi án þess að til stjórnmálalegs öngþveitis kæmi. Slíkt er ekki sjálfgefið.

Stjórnskipun Íslands hélt einnig velli hina viðburðaríku daga 4.-7. apríl síðastliðinn en hinn 5. apríl síðastliðinn bar forsætisráðherra, sem þá sat, upp erindi við forseta Íslands. Eðli þess erindis liggur ekki fyllilega fyrir en reikna má hið minnsta með að til tals hafi komið að rjúfa þing og að boðað yrði til kosninga, sbr. 24. gr. stjórnarskrárinnar.

Hvernig svo sem á málið er litið voru viðbrögð forseta innan þeirra heimilda sem hann hefur samkvæmt stjórnarskránni. Þannig er eðlilegt að forseti óski eftir nánari upplýsingum og rökum áður en fallist er á beiðni um þingrof. Sú könnun var og nærtæk með hliðsjón af þeirri atburðarás sem hafði átt sér stað í aðdraganda fundarins.

Aðstæður þær sem komu upp fyrrnefndan dag voru á margan hátt einsdæmi í sögu íslenskrar stjórnskipunar og áttu eldri fordæmi, um samþykki forseta á beiðni forsætisráðherra um þingrof, ekki við. Það var því rökrétt af hálfu sitjandi forseti að grípa til úrræða í því skyni að tryggja starfhæfa ríkisstjórn í landinu.

Það er eitt hlutverka forsetans.

Um framtíð íslensku stjórnarskrárinnar

Að mínu mati sýnir nýafstaðin atburðarás í íslenskum stjórnmálum að gildandi stjórnskipun landsins sé reist á traustum grunni og að vanhugsað væri að umbylta stjórnarskrá lýðveldisins frá árinu 1944.

Höfundur er dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.