[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Svanhildur Eiríksdóttir svanhildur.eiriksdottir @reykjanesbaer.is Jóhanna Ruth, 14 ára gömul stúlka í Reykjanesbæ, ól ekki þann draum í brjósti að verða söngkona.

Viðtal

Svanhildur Eiríksdóttir

svanhildur.eiriksdottir

@reykjanesbaer.is Jóhanna Ruth, 14 ára gömul stúlka í Reykjanesbæ, ól ekki þann draum í brjósti að verða söngkona. Hún er hins vegar alin upp við mikinn söng og eftir að hafa fengið frábær tækifæri til að æfa sviðsframkomuna í Mylluvision, söngkeppni Myllubakkaskóla, var leiðin á toppinn greið. Hún segist enn ekki hafa náð áttum eftir sigurinn í sjónvarpsþættinum Ísland Got Talent.

Jaenerene Berglind Luna Gaviola, móðir Jóhönnu Ruthar Luna Jose, eða Ruthar eins og hún heitir á móðurmáli sínu og kýs að nota, er stór áhrifavaldur í lífi hennar. Þegar Ruth var að alast upp á Filippseyjum var mamma hennar alltaf syngjandi. Hvenær sem tækifæri gafst frá amstri dagsins var sest fyrir framan sjónvarpið með karókígræjurnar og sungið, en karókísöngur er ríkur í menningu Filippseyinga.

Mylluvision frábært tækifæri

Fyrst um sinn veitti Ruth þessu ekki mikla athygli og hún átti sér ekki draum að verða söngkona. Hún tók reyndar stöku sinnum lagið í söngkerfi hverfisbúðarinnar en fór svo að syngja með mömmu sinni heima í stofu, af því að henni fannst mamma sín „svo góð að syngja,“ eins og Ruth kemst sjálf að orði.

Mamma hennar veitti því fljótlega athygli að dóttirin hafði mikla sönghæfileika og lagði áherslu á að gera hana öruggari í framkomu.

„Það sást alltaf þegar ég labbaði á sviðinu að ég var mjög stressuð, ég labbaði með fæturna í kross. Mamma fór að benda mér á þetta og hjálpa mér að verða öruggari. Sjálf er hún mjög feimin,“ segir Jóhanna Ruth í samtali við blaðamann. Jaenerene Berglind staðfestir að sviðsframkoma sé ekki fyrir hana, þótt hún sé fús til að taka lagið heima í stofu og engin feimni hafi verið við blaðamann sem fékk að fylgjast með þegar þær mægður tóku lagið.

Jaenerene Berglind notaði hvert tækifæri til að koma dóttur sinni á framfæri í reglulegum veislum Filippseyinga á Íslandi, sem ganga undir nafninu „Phil-Ice“, að sögn Ruthar. Hún segir mömmu sina hafa bent á að hún gæti sungið og nú segist hún alltaf vera að syngja í þessum veislum. „Fólk var rosalega hissa þegar það heyrði í mér fyrst og var svo alltaf að biðja mig um að syngja. Ég var rosalega feimin þá, af því að ég var ekki vön að syngja fyrir framan fullt af fólki.“

Það var svo í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, þar sem Ruth hefur stundað nám síðan hún byrjaði í íslenskum skóla níu ára gömul, að tækifæri skapaðist til þess að æfa sviðsframkomuna enn betur. Skólinn hefur um árabil haldið Mylluvision, söngkeppni nemenda þar sem allir sem vilja fá að taka þátt.

„Ég er búin að vinna allar keppnirnar undanfarið og nú er ég hætt að keppa. Nú ætla ég að gefa öðrum tækifæri,“ segir Ruth, enda komin á toppinn í íslenskum söngkeppnum.

Í fyrra vann hún einnig söngkeppni Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, Samfés, svo hún hefur bæði fengið mikið lof fyrir hæfileika sína og tækifæri til að efla framkomu sína á sviði.

Ekki nógu fallegur texti í nútíma popptónlist

Ruth hefur stóra rödd, það hefur hún sannað fyrir þjóðinni, og hún hefur mjög breiðan tónlistaráhuga. Stúlkur á hennar aldri eru alla jafna ekki að hlusta á tónlist 9. og 10. áratugar 20. aldar en það er ákveðin ástæða fyrir því að Ruth kaus að syngja lög Tinu Turner og Bonnie Tyler í keppninni.

„Ég vildi einmitt syngja þessi lög af því að það eru engir að hlusta á þessi lög í dag og langaði til þess að fólk færi að hlusta á þau aftur. Í dag er svo mikið blótað í lögum og mér finnst ekki flott að syngja þannig lög. Ég er að syngja eitthvert geggjað flott lag sem sumir krakkar á Íslandi hafa aldrei heyrt.“

Jóhanna segir ánægjulegt að heyra að útvarpsstöðvarnar séu aftur farnar að spila lagið „Holding Out for a Hero“ með Bonnie Tyler, sem kom henni áfram í úrslit Ísland Got Talent. Dóttir blaðamanns á níunda ári var ekki síður ánægð að heyra lagið í útvarpi og sagði: „Þetta er Jóhanna Ruth,“ enda óþekkt í flutningi annars hjá ungu fólki, eins og Ruth bendir sjálf á. „Svo var mamma alltaf að hlusta á þessi lög og syngja í karókí og ég er enn að læra lög af henni, sem mér finnst flott.“ Hún segir þó mömmu sína ekki syngja eins mikið og áður, en í karókígræjum heimilisins er enn af finna tónlist fyrri áratuga sem Ruth hefur notað til að þjálfa sig í söng.

Langar að semja sín eigin lög

Jóhanna Ruth á stóran draum þegar kemur að framtíðinni og söngnum. Hún segist hafa fylgst með söngkonunni Charice Pempengco frá Filippseyjum verða þekkt í Ameríku, vegna þess að hún lét draum sinn rætast. Söng hún m.a. með Celine Dion og David Foster. Ruth hefur séð að það er ekki ómögulegt að láta drauma sína rætast þó að hún geri sér líka grein fyrir því að hún þurfi að vinna fyrir því. „Ég hugsaði, vá hvað hún syngur vel, mig langar að vera eins og hún og þegar mamma heyrði mig syngja hvatti hún mig áfram.“

Líkt og hjá Charice er Celine Dion ein af uppáhaldssöngkonum Ruthar sem og Whitney Huston heitin og lög þeirra hefur Ruth gaman af að syngja. Hún á sér þann drauma að geta unnið með rödd sína, sem henni finnst enn vera of djúp. „Mig langar að geta sungið hærra og ég veit að það kemur þegar ég verði eldri og læri að syngja eins og ég vil, ekki óperusöng eins og ég er að læra núna í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar,“ segir Ruth, sem stefnir líka á gítar- og píanónám. Auk þess að fylgja úr hlaði sigrinum í Ísland Got Talent langar hana að byrja að semja sín eigin lög á gítar. Þar hefur tónlistarmaðurinn Johnny King, sem er fjölskylduvinur, boðist til að leggja Ruth lið svo það er aldrei að vita nema lagahöfundurinn Ruth Luna Jose stígi fram áður en langt um líður.