Ungir og upprennandi fótboltamenn og -konur léku með knöttinn af miklum myndugleik á nýja gervigrasinu á Valsvellinum í fyrradag þar sem æfingar fóru fram í öllum hornum.
Ungir og upprennandi fótboltamenn og -konur léku með knöttinn af miklum myndugleik á nýja gervigrasinu á Valsvellinum í fyrradag þar sem æfingar fóru fram í öllum hornum. Æfingum undir berum himni hlýtur einnig að fjölga með hækkandi sól en vorið hefur gert vel vart við sig á meðal borgarbúa undanfarna daga. Veðurstofan býst þó við lítilsháttar rigningu í morgunsárið en léttir til þegar líður á daginn.