Óvirðing Ekki má henda rusli í Jón.
Óvirðing Ekki má henda rusli í Jón.
Forsætisráðherra er fyrir alla þjóðina, ekki bara Reykvíkinga. Það má ekkert koma fyrir í landinu svo að Reykvíkingar hlaupi ekki öskrandi út á götu og verði sér til skammar.

Forsætisráðherra er fyrir alla þjóðina, ekki bara Reykvíkinga. Það má ekkert koma fyrir í landinu svo að Reykvíkingar hlaupi ekki öskrandi út á götu og verði sér til skammar. Þeir eru eflaust að ná svifryki úr talfærunum með því, grýta lögregluna og svína allt út í kringum sig. Mér finnst langt gengið að stytta Jóns Sigurðssonar sé ekki undanskilin hjá þessum látum. Hvar eru þau nú, Steingrímur J. Sigfússon og Birgitta Jónsdóttir, gleymdu þau gemsunum?

Svo er það RÚV. Allar neikvæðar fréttir eru endurteknar á klukkutíma fresti allan daginn. Það sem nú er til umræðu munu þeir vera með endalaust í eyrunum á okkur. Svo er ekki vinnufriður á Alþingi fyrir konum, þær eru allt of margar, þær misstu niður um sig buxurnar í síðustu kosningum og halda stjórninni þannig að ekki er vinnufriður. Frekar ættu þær að bæta sig. Þó virði ég tvær konur á Alþingi, Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Vigdísi Hauksdóttur.

Guðlaug Vagnsdóttir.