— Ljósmynd/Marino Thorlacius
Agent Fresco heldur tónleika í Gamla bíói í kvöld kl. 20.30 ásamt gestum, Axel Flóvent og Soffíu Björgu.
Agent Fresco heldur tónleika í Gamla bíói í kvöld kl. 20.30 ásamt gestum, Axel Flóvent og Soffíu Björgu. Hljómsveitin hefur verið önnum kafin eftir að plata hennar Destrier kom út í ágúst í fyrra og hlaut hún flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár og verðlaun fyrir plötu ársins og söngvara ársins, Arnór Dan. Framundan er fjöldi tónlistarhátíða hér heima og erlendis og í haust heldur hljómsveitin í ferð um Norður-Ameríku.