Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands skilaði 11,5% raunávöxtun í samtryggingardeild á rekstrarárinu 2015. Raunávöxtun séreignadeildar nam 11,3% yfir sama tímabil.

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands skilaði 11,5% raunávöxtun í samtryggingardeild á rekstrarárinu 2015. Raunávöxtun séreignadeildar nam 11,3% yfir sama tímabil. Er þetta hæsta raunávöxtun sem tilkynnt hefur verið um á vettvangi íslenskra lífeyrissjóða fyrir síðasta ár.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins var jákvæð um 5% í lok síðasta árs. Heildareignir sjóðsins eru metnar á um það bil 4,5 milljarða króna.