Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir og samherjar hennar í Örebro Volley eru komnar í úrslitaeinvígið um sænska meistaratitilinn í blaki eftir sigur á Svedala, 3:0, í oddaleik liðanna í undanúrslitunum í gærkvöld.

Þær mæta Engelholm í úrslitunum sem hefjast á sunnudag. Jóna var enn og aftur í lykilhlutverki hjá Örebro en hún var stigahæst í liðinu með 15 stig. vs@mbl.is