Fleiri fyrirtæki innan vébanda Samtaka iðnaðarins (SI) telja krónuna henta sem gjaldmiðil fyrir sinn atvinnurekstur nú í ár heldur en í fyrra. Þetta kemur fram í könnun sem SI létu gera.

Fleiri fyrirtæki innan vébanda Samtaka iðnaðarins (SI) telja krónuna henta sem gjaldmiðil fyrir sinn atvinnurekstur nú í ár heldur en í fyrra.

Þetta kemur fram í könnun sem SI létu gera. Þannig segja 38% svarenda nú að krónan henti sem gjaldmiðill en í fyrra svöruðu 29% þátttakenda á sömu lund. Lítil breyting er á hlutfalli þeirra fyrirtækja sem telja krónuna henta illa. Þannig sögðu 23% svarenda að hún hentaði frekar eða mjög illa en í fyrra var hlutfallið 24%.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir að leiða megi að því líkur að fylgni sé á milli afstöðunnar til gjaldmiðilsins og þess uppgangs sem orðið hefur í efnahagslífinu hér á landi á undanförnum árum.

Hann bendir á að mörg stærri fyrirtæki innan SI stóla í meira mæli á útflutning en þau sem minni eru. Þannig komi það fram í niðurstöðum könnunarinnar að stærri fyrirtæki eru mun neikvæðari í garð krónunnar en þau sem minni eru. 16